Bandmenn í 10 ár
Bandmenn og Gamla Bíó bjóða upp á risa, risastóra afmælisveislu 23. ágúst næstkomandi, strax að lokinni flugeldasýningu Menningarnætur. Á þessu ári fagnar hljómsveitin tíu árum af stanslausri stemningu og á Menningarnótt verður öllu tjaldað til! Okkar einkennisorð eru: Pásulaus stemming, og það er nákvæmlega það sem verður á boðstólnum í afmælisveislu Bandmanna 23. ágúst.
Sérstakir afmælisgestir sem munu stíga á stokk með okkur verða kynntir á allra næstu vikum! Stay tuned.
og já .. það verður FRÍTT INN!
Taktu kvöldið frá, pússaðu skóna, krem á tásurnar og fagnaðu TÍU ÁRA STÓRAFMÆLI með okkur!
Bandmenn í Gamla Bíó á Menningarnótt
Bandmenn og Gamla Bíó bjóða upp á heljarinnar stemningsball að lokinni flugeldasýningu á Menningarnótt 2023 næstkomandi laugardagskvöld. Hljómsveitin er ein sú allra vinsælasta þegar kemur að stemningu og partýi en það verður öllu til tjaldað í Gamla Bíó á laugardaginn.
Dyrnar verða opnar um 23:10 og verður FRÍTT INN.

